Wednesday, April 9, 2008

Nytt simanumer vitlaust

Jaeja. Simanumerid sem eg gaf upp var vitlaust tannig ad tetta er nyja simanumerid. Eda tad segir Claro.

0051-84-984777951

Nuna er eg komin ur camino inca og tad var tryllt og eg a bara 3 daga eftir herna i Cusco sem mer finnst skritid. Hef engan tima til ad blogga tvi eg tarf ad klara svo margt adur en eg fer heim. Hlakka til ad sja ykkur oll en um leid langar mig voda litid ad fara fra Peru.

Saturday, April 5, 2008

Nytt simanumer

Eg er ad fara i Inca trail a morgun. Verd tar i 4 daga en tar er vaentanlega ekkert simasamband. Ef tid vildud samt reyna ad na i mig ta hafa simanumerin herna breyst. Nuna er numerid mitt :

0051-984-9777951

Tad er buid ad baeta vid 9 tarna fyrir framan 84.

Saturday, March 29, 2008

Mamma min

Tad sem er buid ad gerast er ad mamma min kom. Mikid var tad otrulega gaman.



Vid tokum turistan a tetta og skodudum Cusco i 3 daga. Eg syndi henni tad helsta og reyndi ad vera godur guide.




Baerinn var skodadur fra ymsum sjonarhornum og audvitad smakkadi mamma min cuy(naggris). Tann dag var eg mjog stolt af muttu minni. Eg fekk mer alpaca (litid lamadyr) og vid skemmtum okkur konunglega.

Sidan var haldid til Machu Pichu.



Tar er madur kominn i sma "the jungle" og vid fundum fyrir tvi med heitu rigningunni. Mikil upplifun. Vorum i 2 daga en forum seinni daginn ad rustunum sjalfum. Ta rigndi ekki neitt og utsynid var olysanlegt.



A Machu Pichu fengum vid guide og svo lobbudum vid nidur ad baenum. Rosalega duglegar.

Eftir Machu Pichu forum vid til Lake Titicaca. Tar eru fljotandi eyjar bunar til af monnum. A hverri eyju bua 5-6 fjolskyldur og ef einhver rifrildi verda er eyjan bara skorin i sundur og ta eru komnar 2 eyjar. Mjog serstakt.



Vid gistum svo eina nott a eyju a vatninu. Hun var reyndar ekki fljotandi en vid svafum i moldarhus med engu rafmagni og "mamman okkar" var 36 ara, atti 7 born og var med eina framtonn.


Tetta var eldhusid.

Vid gengum svo upp a fjall a eyjunni og mamma min komst tangad med lettum leik tratt fyrir haedina, en vid forum upp i 4120 m haed.


Mamma min sem gaeti verid framan a Lonely Planet bok.

Um kvoldid vorum vid svo klaeddar upp i fot sem tau klaedast og sidan var haldid a "diskotek". Upplifun.



Vid fengum yndislegt vedur a eyjunum og tetta var allt saman frabaert. Sigldum a bat i 3 tima og hvora leid og nutum utsynissins og solarinnar.


Fallega mamma min.

Eftir frumstaedu eyjarnar forum vid svo og slokudum a i Arequipa i 4 naetur. Tetta er naest staerst borg Peru og mun nutimalegri en Cusco. Tarna Gistum vid a mjog finu hoteli a Plaza de Armas (adal torgid) og komumst aftur inn i menninguna. Forum i turistabus med opnu taki, slokudum a og nutum lifsins.


Af takinu af hotelinu okkar.

Tessi ferd var aedisleg i alla stadi og otrulega gaman ad fa mommu hingad.



Takk mamma min fyrir frabaera ferd.

Friday, March 14, 2008

Tad helsta...

Otrulega langt sidan eg hef skrifad eitthvad herna. Tad er bara buid ad vera svo brjalad ad gera og eg var ad byrja i vinnunni tannig ad eg hef ekki haft tima. Eg aetla nu ekki ad segja fra ollu tvi sem hefur a daga mina drifid en her er sma.

Tessa helgi sem var ekkert planad for eg a djammid med fjolskyldunni minni. Tegar eg tala um fjolskylduna mina ta meina mommunni, pabbanum, Tano og Oscari og vid komum ekki heim fyrr en kl 3:30 um nottina. Mjog ahugavert en gaman. Djammid innihelt m.a. romm og kok, pulsur med fronskum, tonleika og diskotek tar sem aldurstakmarkid var 23ara en vid komumst oll inn. Tid getid imyndad ykkur rest.

Eg for lika a gjorning med Julie og kaerastanum hennar en hann er fra Peru. Tetta var mjog ahugavert en eg skildi eiginlega ekki neitt.

Fyrsti vinnudagurinn minn var a manudeginum fyrir taepum 2 vikum. Eg tarf ad taka bus i 30 min og svo tarf eg ad labba i 15 upp fjall. Tetta er bokstaflega fjall tvi tetta er svo bratt ad eg tarf ad stoppa svona 4x a leidinni upp. Eg er sem betur fer ad vinna med Julie tannig a hverjum morgni lobbum vid tetta saman. Vonandi komumst vid i einhverja aefingu. Mundi ekki vilja labba tarna mikid um ein.

Eg er ad vinna i hverfi herna i Cusco sem heitir Ticatica en tar er mjog mikil fataekt. Arslaunin hja folkinu eru um 100 dollarar. Arslaunin! Folkid lifir i moldarhusum og a ekki mikid ofan i sig og a. I fyrstu voru krakkarnir mjog erfidir. Alltaf ad lemja hvert annad, rifast og grata. Bist mjog passlega vid tvi ad tau seu lamin heima hja ser. Tau eru a aldrinum 3-5 ara en einn er 6 ara en hann er munadarlaus, kann ekki litina og hagar ser eins og 3 ara. Tannhirdan er hraedileg. Tau eru oll med svarta bletti i tonnunum tvi taer eru svo skemmdar. I fyrstu bustudum vid alltaf tennurnar a hverjum morgni en svo attu einhverjir ekki tannbursta tannig ad ta var tvi bara sleppt. Daglega kvarta krakkarnir yfir tvi ad tau seu med tannpinu en vid getum ekkert gert. Otrulega sorglegt. Eftir tvi sem dagarnir lida erum vid samt ad na teim meira og meira yfir a okkar band. Tau eru haett ad rifast eins mikid og eru ad laera ad deila med ser. I fyrstu tegar vid settum kubba a bord redust allir krakkarnir ad kubbunum og hrifsudu af hvert odru. Survival of the fittest. Nuna eru tau farin ad leika ser meira saman, ekki mikid en madur ser samt muninn.

I dag fengum vid svo geisladiskaspilara lanadann hja skolanum og tokum i vinnunna og spiludum fyrir tau tonlist. Andlitin a teim ljomudu og vid donsudum oll saman. Einn settist lika nidur vid hlidin a taekinu og song med ollum logunum tott hann kunni tau ekki. Otrulega kruttlegur. Eg var lika med tannbursta sem eg kom med ad heiman fra mommu og gaf hverjum og einum einn tannbursta. Tau voru svo anaegd. Mjog godur dagur.

Tetta er vinnan min i stuttu mali tott tad se ekki haegt ad segja fra ollum upplifunum her.

Rikke, Zinia og Ellen (donsku stelpurnar) foru svo fra Cusco sidasta laugardag. Taer eru a leidinni til Ecuadore en stoppa a fullt af stodum a leidinni. Mjog spennandi. Vegna tess ad taer voru ad fara var tvi tekid eitt videokvold med fullt af poppi og svo var farid hressilega ut a fostudeginum. Tad var otrulega gaman en mjog leidinlegt ad vera ad kvedja taer.

Vedrid er buid ad vera undarlegt. Tad kom svo mikid haggel um daginn ad eg helt ad takid mundi rigna af husinu en jordin var hvit eftir a. Tad er buid ad vera ansi mikil rigning og litil sol. Regntimabilid er samt ad klarast tannig ad vonandi breytist tetta.

Eg for svo i road trip seinasta sunnudag med Julie til Calca. Aetludum ad fara i "hot springs" sem vid hofdum heyrt um. Tegar vid komum tangad var tetta hins vegar allt inni og mjog furdulegt. Engir turistar en tar af leidandi vorum vid eina hvita folkid og eg eina ljoshaerda manneskjan. Vid skemmtum okkur samt vel og tetta var agaet dagsferd.

Sidustu tvaer vikurnar hef eg lika verid ad plana ferdina hennar mommu en hun er ad koma morgun. Mikid otrulega hlakka eg til. Eg get eiginlega ekki bedid. Eg fer tvi a morgun ad saekja hana a flugvellinn kl 10:30 en mamman min herna er ta buin ad bjoda henni i kokate. Eg verd i frii fra vinnunni minni medan mamma er herna tannig ad vid erum ad fara til Machu Picu, Puno, Lake Titicaca og Arequipa. Mikid verdur tetta skemmtilegt.


Litli strakurinn sem song allan timann


Maria Liz - litla vinkona min (2,5 ara)


Tad er ekki rafmagn a stadnum og tvi turftum vid ad kaupa batteri fyrir taekid okkar. A medan hlustudu tau a tonlistina i litlum geisladiskaspilara. Andlitin ljomudu.


Tannburstarnir


Tessi stelpa er svo yndisleg

Tuesday, March 11, 2008

...

Eg hef otrulega mikid ad gera nuna. Vinnan var ad byrja og tetta er allt svo framandi. Eg mun blogga bradum en ekki tessa stundina. Aetladi ad hlada inn nokkrum myndum en netid ad strida mer.

Thursday, February 28, 2008

Seinasti skoladagurinn minn

Rosalega lidur timinn hratt. I dag var sidasti skoladagurinn minn. Eg trui tvi eiginlega ekki. A manudaginn byrja eg ad vinna. Eg trui tvi heldur ekki. Eg er buin ad vera herna i 6 vikur og mamma kemur eftir 2 vikur. Tad er otrulegt.

Seinustu helgi var eg allan timan med familinunni minni herna og ad boglast afram i spaenskunni. A laugardaginn vaknadi eg frekar snemma og var bara i rolegheitunum. Um trju leitid for eg svo ad kaupa afmaelisgjof handa Oscari. Eg labbadi i tvo tima ad leita ad einhverju sem mig langadi virkilega til ad gefa honum en her er mjog erfitt ad finna annad en turistabudir med lamavorum. A endanum fann eg samt bud sem var pinulitil en innihelt mjog evropskar fatavorur. Tau elska fotin sem eg geng i tannig ad eg akvad ad skella mer a einn bol i tessari bud. I annari bud keypti eg svo veski handa drengnum tvi hans er mjog onytt. Tegar eg kom heim pakkadi eg tessu svo inn og bjo til kort og skreytti pakkann. Eg teiknadi lika pizzu og skellti med pakkanum tvi pizza er uppahalds maturinn hans og hann atti s.s. ad fa eina slika i afmaelisgjof. Skilirdin voru samt ad hann turfti ad borda hana med mer. Tegar eg var ad fara ad borda var Tano ad fara ut ad hitta vini sina og baud mer med. Sagdi ad vid mundum bara fa okkur Kari borgari. Eg for og hitti vin hans Guie, sem er einn fyndnasti naungi sem eg hef kynnst og annan vin hans sem eg man ekki hvad heitir. Vid forum a einhvern stad sem var mjog local og spilududum fotboltaspil. Stemningin sem myndadist var otruleg. Lidin voru nefnd KR og Fjolnir og i hvert sinn sem einhver skoradi mark var oskrad og gefid hi-five og fleira. Otrulega gaman. A leidinni heim fengum vid okkur svo Kari borgara og eg, Guie og Tano forum svo heim ad spila Ludo. Eg veit tetta hljomar mjog illa en i alvoru talad var tetta skemmtilegasta Ludo sem eg hef spilad a aevi minni. Stemningin var svipud i og i fotboltaspilinu en vid spiludum i 3 klukkutima og eg for ekki ad sofa fyrr en rumlega 2. Oturlega skemmtilegt kvold i alla stadi.

A sunnudaginn var skritid vedur. Fyrst var sol, svo kom rigning, sidan kom haggel og svo aftur sol. Eg vaknadi frekar treytt um niu leitid tvi Oscar atti afmaeli. Daginn adur hofdu mamma og pabbi Antonio komid en eg hef aldrei sed tau adur. Tau eru vodalega kruttleg. Tau voru tarna og svo oll familian. Tad var bordadur afmaelis morgunverdur og vid fengum jogurt, koku og braud. Fyrsta sinn sem eg fae jogurt herna. Oscar var hins vegar svo tunnur ad eg helt ad hann mundi ekki lifa morgunverdinn af. Var alltaf ad kvarta um hausverk og sagdi mer svo ad hann hefdi skemmt ser ansi vel kvoldid adur. Vid sungum svo afmaelissongin a ensku og spaensku eins og er vaninn. Sidan er vist einnig vaninn ad afmaelisbarnid taki bita af kokunni. Tegar tad er gert er kokunni hins vegar ytt ad afmaelisbarninu tannig ad tad faer kokuna ut um allt andlit. Tetta var ad sjalfsogdu gert vid Oscar. Amman atti sidan afmaeli i seinustu viku og tad sama var gert vid hana. Hun sagdi samt ad hun vildi bara taka litinn bita af kokunni og ekki fa hana um allt andlit. Tano helt a kokunni en um leid og hun tok bita missti hann naestum tvi med teim afleidingum ad kakan for naestum a hana alla. Tegar allir voru bunir ad fullvissa sig um ad tad vaeri allt i lagi med ommuna sprungum vid oll ur hlatri. Tetta var otrulega fyndid. Vid bordudum svo morgunmatinn i rolegheitunum. Eftir hann var eg bara i rolegheitum og gaf Oscari pakkan en eg held ad hann hafi verid frekar anaegdur. Mamman spurdi mig svo hvort eg vildi hjalpa til ad undirbua veisluna sem atti ad vera kl 5. Audvitad vildi eg tad tannig ad megnid af deginum var eg ad baka og elda med familiunni. Mjog gaman. Afmaelid var svo kl 5 og tar voru allar fraenkur og allir fraendar. Aftur var sunginn afmaelissongurinn og biti tekinn af kokunni. Tetta var mjog fin veisla i alla stadi. Guie vinur hans Tano kom og tar sem hann er svo fyndinn naungi var hann med mjog mikid stad up alla veisluna. Folk hlo og hlo. Eg er lika mikid atridi i svona bodum. Bokin sem eg gaf teim um Island gengur a milli og eg tarf yfirleitt ad segja romveskur riddari svona 10 sinnum. Dansad var salsa og svo var karoki. Mjog ahugavert. Tad voru teknar hopmyndir. Fyrst af ollum krokkunum, svo af ollu gamla folkinu, svo af fraenkum og fraendum og svo loks mynd af fjolskyldunni tar sem eg var medtalin. Tessa helgi fekk eg mjog skritna tilfinningu. Eg vard allt i einu ein af teim. Ein af fjolskyldunni. Systir krakkanna. Mjog skemmtileg tilfinning.

Guie vinur hans Tano var svo ad fara heim og eg og Tano fylgdu honum tangad. Vid attum mjog mikid cuality time og tetta var mjog gaman. Tegar vid komum heim var veislan svo byrjud ad roast. Vid horfdum sma a Oscarinn og svo heldu allir i hattinn. Otrulega skemmtileg helgi.

Tessa vikuna hef eg svo verid ad gera ymislegt en eg held tad vaeri of langt ad segja fra tvi ollu her. Eg var med uppahalds kennarann minn i skolanum tessa vikuna og var med einni vinkonu minni fra Danmorku. Besta vika sem eg hef att i tessum skola til tessa. Vid hlaegjum alla daga og timarnir lida svo hratt. Eg for i tvo salsa tima i tessari viku i alvoru salsa skola. Tad er otrulega gaman og eg hugsa ad i naestu viku aetla eg ad profa ad fara i einka tima. Langar mjog mikid ad na tessu vel adur en eg kem heim. I tessari viku erum eg og tessi danska stelpa sem heitir Julie bunar ad vera i mjog miklum vandraedum med sjalfbodastarfid okkar. Tad reddast hins vegar alveg og vid erum nuna komnar med vinnu i skola og erum ad adstoda vid ad kenna 5 ara bornum sem eru ad byrja i skolanum. Hlakka mjog mikid til og segi betur fra tvi i naestu viku. I gaer bakadi eg svo koku med Julie ut af tvi ad sidasti skoladagurinn okkar var i dag. Vid hittumst fyrir framan Mega og keyptum i kokuna og forum svo heim til hennar ad baka hana. Vid vorum ekki med neina uppskrift og hun kunni ekki ad baka tannig ad tetta velti allt a mer hvernig kakan mundi bragdast. Vid slumpudum hveiti, egg, mjolk, sykur, sukkuladi og fleira i skal og hraerdum. Smokkudum svo og baettum ut i tangad til okkur fannst vid hafa prydilegt deig. Tetta var sidan sett i ofn i einhverri bud tvi ofninn hja fjolskyldunni hennar var biladur. Tegar kakan kom til baka var hun eins og eldfjall tvi hun hafdi fallid. Tad var hins vegar allt i lagi tvi hun bragdadist storkostlega. Otrulegt en satt. Vid bjuggum svo til krem og skrifudum a kokuna Libia tvi tad er uppahalds kennarinn okkar.

Eftir tetta for eg adeins heim adur en eg for i salsatima. Eg hitti svo Julie aftur a kaffihusi tvi vid turftum ad klara raeduna okkar sem vid turftum ad halda daginn eftir fyrir allan skolann. Allir turfa ad gera tad seinasta daginn sinn. Vid bjuggum til mjog fyndna raedu sem innihelt ljod og nanast allar taer malfreadireglur sem vid hofum laert i skolanum. Allir sem hafa haldid tessa raedu til tessa hafa bara sagt Gracias por todo (Takk fyrir allt) en vid vidlum hafa tetta odruvisi. Eftir kaffihusid forum vid adeins a Mythology ad dansa salsa en eg var samt komin snemma heim.

I dag er svo buin ad vera otrulega skemmtilegur dagur. Eg vaknadi og tad rigndi svo mikid ad eg atti ekki til eitt aukatekid ord. Eg klaeddi mig samt i frekar fin fot tvi eg og Julie vildum vera finar seinasta daginn okkar. Eg tok svo combi (litil ruta sem 100 manns troda ser inn i) i skolann ut af rigningunni. Tad kviknadi hins vegar i combinum tannig ad allir hlupu ut. Eg turfti tvi ad taka annan combi en tad var nu allt i lagi. Tegar eg kom i skolann beid eg eftir Julie og vid faerdum Libiu kokuna okkar. Hun var ekkert sma anaegd og vid vorum i svona 2 klst ad bord kokuna og drekka inca cola og hlust a a music. Mjog gaman og otrulega nice. I pasunni heldum vid svo raeduna okkar. Eg var frekar stressud en hun heppnadis frabaerlega i alla stadi. Ollum fannst hun mjog fyndin og vid fengum skireinin okkar. Eftir pasunna turftum vid svo ad fara i seinasta profid okkar og tad gekk lika otrulega vel. Allt gekk upp fullkomlega. Vid erum svo bunar ad vera ad horfa a mynd tessa vikuna og turftum ad klara hana. Skolinn klaradist hins vegar adur en vid gatum klarad tannig ad vid vorum klst lengur i skolanum en vanalega. Hef orugglega aldrei hlegid svona mikid a aefinni. Vid tokum svidan hopmynd og skiptust a numerum. Aetlum ad hittast einhverntiman a kaffihusi tegar eg og Julie erum ordnar super godar i spaenskunni. Tetta er buid ad vera yndislegur dagur.

A eftir er eg svo ad fara a munadarleisingjahaeli ad gefa nammi og fleira. Tad verdur orugglega skemmtilegt. Hef engin plon um helgina en eins og alltaf verdur orugglega nog ad gera.

Friday, February 22, 2008

Pakki, Kari og tonleikar

Eg hef akvedid ad reyna ad byrja ad skrifa herna aftur reglulega. Tad er svo erfitt ad skrifa svona long blogg.

A tridjudagskvold for eg a kaffihus med nokkrum ur skolanum og svo ad dansa salsa. Vid forum a stad sem heitir Mythology. Tar er fri salsa kennsla fyrir byrjendur fra 9:30 -10:30. A stadnum komumst vid ad tvi ad folkid sem kennir tar salsa er med salsa skola. Vid skradum okkur oll i hann og eg er ad fara i fyrsta timann minn a manudaginn. Tad eru einungis 4 i hverjum tima og vid faum skaffada straka til ad dansa vid. Hljomar rosalega spennandi.

Tad gerdist einhvernegin allt a midvikudaginn. Tegar eg kom i skolann fretti eg ad pakkinn sem pabbi sendi mer vaeri komin. Eg for i hleinu minu ad na i hann tvi ad posthusid er einungis opid her til hadegis. Tegar eg kom a posthusid sagdi madur mer tar hins vegar ad eg tyrfti alvoru passann minn en ekki ljosrit af honum eins og eg er alltaf med med mer. Jaeja. Eg akvad ad fara samt heim tvi ad eg vissi ad verkfall mundi byrja daginn eftir og stadna i tvo daga og ta vaeri ekkert opid. Eg tok tvi leigubil heim og til baka (mundi taka mig 40 min ad labba) og maetti svo med passann tilbuin ad fa pakkann minn. Ta turfti eg hins vegar ad bida i 40 minutur eftir honum og tegar eg fekk hann var hann allur opnadur til ad tekka hvort tetta vaeri nokkud dop eda eitthvad tviumlikt. Eg skrifadi lika undir fullt af pappirum ad eg hafdi fengid pakkann og sidan loksins gat eg labbad ut ur posthusinu 40 min of sein i tima. Tetta var hins vegar svo tess virdi. Kom mer a ovart hvad mer totti gaman ad fa tennan pakka. I honum voru tristar, gummi, kokosbollur, sukkuladirusinur, bref og ullarpeysuvesti. Aedisleg gjof i alla stadi.

Eg hljop i tima en kennarinn vissi ad eg var ad saekja tennan pakka tannig ad tad var allt i lagi ad eg var sein. I skolanum erum vid nuna ad horfa a otrulega goda mynd sem heitir Voces inocentes. Maeli eindregid med ad allir sem hafa tok a horfi a hana. Eftir fyrstu 10 min var eg byrjud ad grata. Frabaer mynd i alla stadi. Eftir skola rolti eg heim og bordadi med fjolskyldunni. Eg akvad svo ad bjoda teim upp a allt nammid i eftirret. Tau elskudu tad. Kokosbollurnar slogu i gegn. Vid toludum svo heilmikid um island og tau eru svo ahugasom. Mjog gaman ad segja teim fra.

Eg rolti upp i skola ad tekka a flugmida fyrir mommu en konan sem ser um tad var ekki vid. Onnur kona sem ser um sjalfbodastorfin vildi hins vegar tala vid mig. Hunn sagdi mer ad tad hafdi ordid einhver misskilningur og skolinn sem eg atti ad vinna hja byrjar ekki fyrr en i april. Eini moguleikinn sem eg hefdi vaeri annad hvort ad vinna eftir hadegi eda ta med fotlud born eda gomlu folki fyrir hadegi. Eg veit ekkert hvad eg a ad gera en vid aetlum ad finna ut ur tessu i naestu viku. Held eg teysti mer ekki ad vinna med fotlud born. Auk tess sem skolinn hefdi verid tilvalinn til ad laera meira i spaensku. Tetta hlytur samt ad reddast.

Tegar eg kom heim var husid fullt af eldri konum. Amman var i heimsokn og allar systur hennar og nokkrar fraenkur. Taer voru allar ad koma i kaffi og voru svo kruttlegar. Allir settust svo vid bord og vid fengum te og kokur og braud. Mjog gaman. Taer spjolludu heilmikid vid mig og bokin sem eg gaf fjolskyldunni um Island gekk hringin. I sjonvarpinu var a sama tima fotboltaleikur og i ljos kom ad taer voru allar mjog miklir addaendur. Tad var tvi kveikt a fotboltaleiknum medan vid bordudum.

Eg var buin ad maela mer mot vid Tano(eldri brodurinn) kl 18. Hann var adeins seinn en hann aetladi ad syna mer hljomsveit sem vaeri ad spila a bar herna nalaegt. Tegar vid komum tangad hafdi hljomsveitin hins vegar verid ad spila daginn adur. Vid lobbudum tvi a listasafn tar sem kaerastan hans vinnur. Hann spurdi mig svo hvort eg vildi hitta vini hans sem vaeru ad skemmta ser tarna rett hja. Teir vaeru mjog fullir en tad gaeti verid gaman. Eg tadi tad audvitad og vid forum a einhvern local stad tar sem eg var eina hvita og ljoshaerda manneskjan a svaedinu. Vid forum svo a eftri haedina tar sem voru bara vinir hans ad dansa. Hann kynnti mig fyrir ollum og kalladi mig allan timan systur sina. Hann for svo ad dansa vid einhverja stelpu og eg sat a medan i sofa. Sidan byrjadi einn ad tora ad bjoda mer upp og sidan settist eg ekkert nidur fyrr en vid forum heim. Mikid rosalega er erfitt ad skilja fullt folk tala spaensku. Tetta var samt oturlega gaman.

A leidinni heim forum vid a Kari sem eru hamborgarar sem kosta 22 kr. Teir eru ekkert sma godir. A stadnum sagdi Tano mer ad krakkarnir sem vid vorum med aettu allir nanast enga peninga. Tau bjuggu oll mjog langt fra og tess vegna foru allir svona snemma heim (um 10 leitid). Sumir turftu ad labba 2 klst a dag til ad komast i skolann tvi teir aettu ekki fyrir tvi ad fara i combi (10kr) eda taxa (44kr). Tetta kom mer mjog mikid a ovart. Datt tetta ekki i hug. Hann sagdi mer einnig ad tau vaeru dalitid utangards i skolanum en honum vaeri alveg sama. Skipti hann ekki mali hversu mikla peninga allir aettu. Hann vissi samt alveg tegar hann var med teim ad hann var odruvisi. Otrulegt. A leidinni heim baud eg svo upp a trista en allt nammid klaradist tennan dag.

I gaer var eg svo mjog treytt. Eftir skola og hadegismat hitti eg krakka a danska kaffihusinu. Tar horfdum vid a biomynd, bordudum popp og drukkum djus. Mjog kosi. Eg rolti svo heim tvi i dag byrjadi verkafallid og tad eru engir bilar a gotunum. Tetta er sama verkafall og um daginn. Verid ad motmaela ad allir peningar sem koma ur Machu Pichu og fleiri turistastodum fara til Lima. Tad eru steinar a gotunni svo bilar geti ekki keyrt. Ef bilar sjast vera ad keyra er hent i ta steinum. Ef budir eru opnar er einnig hent i taer steinum. Dekk eru brennd a gotunni. Folk ad oskar ut um allt. Flugvelum aflyst. Mjog hart og tetta hefur ahrif a alla sem bua i Cusco. Tessa tvo daga eru engir skolar hja venjulegum krokkum. Bara skolar fyrir turistakrakka eins og mig.

I dag var prof eins og venjulega i skolanum. Eg og stelpa sem heitir Julie erum svo bunar ad bidja um ad vera saman i naestu viku med serstakan kennara sem vid badar elskum. Hlakka ekkert sma mikid til. Eg for eftir skola og hadegismat ad kaupa flugmidann handa mommu fra Lima - Cusco. Tad er ordid svo stutt tangad til hun kemur. Eg hitti svo donsku stelpurnar a kaffihusi tvi taer eru allar ad fara til Puno i kvold en eg aetla tangad med mommu. Tegar eg labbadi heim voru bilar aftur komnir a goturnar.

Um helgina er nog um ad vera. Tano er buinn ad bjoda mer a tonleika sem hann sjalfur er ad spila a og Oscar a svo afmaeli a sunnudaginn. Tetta verdur fin helgi.

Nokkrar myndir - er ad hlada inn myndum inn a linkinn myndir


Ad fara ad borda cuy (naggris)


Tarna er gripurinn



Tuesday, February 19, 2008

Mjog langt blogg

Tessi ruma vika er buin ad lida rosalega hratt. A manudaginn fyrir viku var fyrsti skoladagurinn minn tar sem eg var eftir hadegi i skolanum eda fra 2-6. Eg var ekki allt of satt med tad en tar sem allir vinir minir voru lika a tessum tima let eg mig nu hafa tad. Um morgunin hafdi eg tad bara rolegt. Tvodi fotin min og las uti i solinni. Kennarinn minn tessa vikuna var yndislegasti kennari sem eg hef haft hingad til. Hun heitir Libia og gerir rosalegar krofur til nemenda sinna en i leidinni er hun mjog skemmtileg. Mikill munur a henni og kennaranum i seinustu viku. Eg er rosalega satt.

A tridjudeginum vaknadi eg snemma tvi eg var buin ad akveda ad hitta nokkra kaffi og vid aetludum ad borda saman morgunmat og nota svo Boleto Toristico til ad fara a nokkur sofn. Vid forum ut ad borda a Jack´s cafe tar sem okkur langadi i eitthvad mikid og lekkert. Tar sem tetta er ameriskur stadur turfti eg audvitad ad fa mer ponnukokur med siropi og kaffi-milkshake. Tetta var svo gott en eg var hins vegar ad deyja eg var svo sodd eftir tetta. Vid roltum svo og nadum ad skoda 3 sofn tennan dag adur en vid turftum ad halda heim og borda hadegismat med fjolskyldunum okkar. Eg bordadi hadegismatinn tott eg trui tvi ekki ennda eftir allan tennan morgunmat og helt svo i skolan. Eftir skola var svo ferd med skolanum i leikhus ad sja tibiska dansa herna i Peru. Inngongumidi var einnig Boleto Turistico tannig ad audvitad forum vid oll ad sja tad. Tetta var mjog ahugavert og skemmtilegt en mjog svipad og dansarnir a carnivalinu.

A midvikudaginn heldu sofnin afram tar sem vid hofum bara 10 daga til ad klara Boleto Turistico. Nadum aftur ad skoda 3 sofn og erum tar med buin med sofnin en eg er lika komin med nog af teim i bili. Tennan dag var lika salsa en tar sem nuna eru 12-14 ara born i skolanum i eina viku og tau voru oll i salsa nennti eg ekki ad fara og for bara heim og hafdi tad notalegt med fjolskyldunni.

Valentinustardagurinn rann upp med ollu tvi sem tvi fylgir. Her er hann miklu staerri en heima. Oll por senda hvort odru astarbref med hjortum i og allt er vodalega vaemid. Eg turfti hins vegar ad vakna snemma tar sem eg var med fyrirlestur i skolanum tennan dag. Eg afladi mer upplysinga a netinu og for svo med tad ut og laerdi uti. I skolanum var svo stelpan sem er med mer i bekk ad fara a fotboltaleik tannig ad eg var ein med yndislega kennaranum minum i 3 tima. Tad var nu allt i lagi en eg kludradi algjorlega fyrirlestrinum. Geri bara betur seinna. Tegar eg kom heim var fullt af vinum Oscars heima tannig ad eg for bara ad spjalla vid ommuna og mommuna. Kvoldid endadi svo rolega. Eg horfdi a Gossip Girl i sjonvarpinu og taladi vid folk a skype. Hringdi lika i Nonnu tvi hun var ad fara til Santa Barbara daginn eftir. Eg held vid verdum a sama timabelti.

Jaeja. Fostudagur og manudur sidan eg lagdi af stad i tetta ferdalag mitt. Mikid er timinn fljotur ad lida. Morguninn var rolegur. Laerdi fyrir hid vikulega fostudagsprof, bordadi med fjolskyldunni og helt svo i skolann. I skolanum gerdist eitthvad og eg gat ekki talad spaensku. Vard mjog pirrud og var mjog angaegd tegar dagurinn var buinn. Eg for frekar fint klaedd i skolann tar sem eg og dosnku stelpurnar vorum bunar ad akveda ad nota afmaelisgjofina mina og borda cuy (naggris). Tipon var samt hins vegar bara med cuy i hadeginu tannig ad vid bordudum cuy i Cusco en tad var mjog fint. Eg fekk hann heilsteiktan med haus og klom allt. Madur turfti ad vera virkilega villimannslegur til ad geta bordad hann en hann bragdadist otrulegt en satt mjog vel. Vid drukkum svo hvitvin med matnum og vorum mjog elegant. Eftir matinn for eg adeins heim ad skila myndavelinni minni og for svo aftur ad hitta krakkana. Vid forum a nokkra stadi og fengum okkur nokkra drykki og tetta var otrulega gaman i alla stadi. Tokum risa dans session og skemmtum okkur konunglega. Strakarnir herna eru hins vegar med meiri mjadmir en stelpur heima. Tad er mjog fyndid og erfitt ad skella ekki upp ur tegar teir koma og reyna ad dansa vid mann. Tetta var otrulega gaman og eg kom heim kl 3 mjog satt med kvoldid.

Laugardagur og eg vaknadi kl 10 tvi folkid a nedri haedinni hafdi bodid mer i skirn og 2 ara afmaeli sonar sins tennan dag. Eg var bara i rolegheitum um morguninn en klaeddi mig svo frekar fint i tilefni dagsins. Athofnin var kl 4 og hun var mjog lik skirnum heima nema hvad bornin heldu oll a kertum og hvitur klutur var lagdur yfir hofdudid a bornum. Mjog ahugavert og gaman. Eftir athofnina var svo hent i loftid nammi og smapeningum eins og hrisgrjonum a nygift hjon herna heima. Mjog athyglisvert.

Eftir athofnina heldum vid i veisluna. Hun var haldin i sal tar sem allt var skreytt med blodrum. Tar kom i ljos ad tetta var ekki adeins veilsa fyrir tennan litla dreng heldur lika fyrir fraenda hans. Tvaer systur hofdu ta att strak a sama degi og tetta var veisla fyrir ta bada. Veislan var mjog fyndin. Tad kom trudur og lek vid krakkana i svona 4 tima. Hann var med tofrabrogd, bruduleikhus og margt fleira. Hann skemmti krokkum og fullordnum. Var mjog fyndinn. I veislunni var svo bodid upp a popp, gelly, koku og svo romm og kok. Ja. Romm og kok i 2 ara afmaeli og skirn.

Vid vorum tarna til 9 og fengum tvi lika kvoldmat en tad var krilladur kjuklingur a kolum. Otrulega godur en med honum var romm og kok ad drekka. Mjog fyndid og odruvisi en heima. Tegar vid komum heim var svo party a nedri haedinni. Eg for tangad og tar var i bodi bjor og meira romm og kok. Tar voru allir ad dansa salsa. Gamlir sem ungir. Allir gomlu kallarnir vildu dansa vid mig og audvitad gerdi eg tad. Tetta var otrulega gaman. Kynnist medal annars manni fra amazon svaedinu i Peru og hann vildi endilega reyna ad tala vid mig ensku og sagdi alltaf brother i stadinn fyrir syster o.s.frv. Skil nuna hvernig folki lidur tegar tad heyrir mig tala. Eg taladi hins vegar bara spaensku allt kvoldid. Tetta var otrulega skemmtileg upplifun.

A sunnudeginum vaknadi eg svo kl 8 mjog treytt og var ad fara i river rafting. Eg hitti stelpurnar sem foru med mer a Plaza de Armaz og tadan tokum vid rutu i 1,5 klst. Solin skein i heidi og lifid var ljuft. Tegar vid komum a stadinn var tar vodalega kruttleg og fin adstada. Souna, sturtur, buningsherbergi og fleira. Vid fengum blautbuninga og skelltum okkur i ta. Sidan klaeddum vid okkur i jakka og vesti og settum okkur hjalma og ta vorum vid tilbunar i slaginn. Guidinn sem var med okkur kenndi okkur i byrjun grunnatridin og hvad vid aettum ad gera tegar hann segdi tetta og hitt og sidan logdum vid i hann. Tetta var aedislegt i alla stadi. Stundum var mjog erfitt ad roa en tetta var svo mikid aderenalin kikk ad madur haetti bara ekki tott madur vaeri treyttur. Tegar vid vorum bunar i raftinginu tok a moti okkur heit souna og ljuffengur hadegismatur. Vel heppnad i alla stadi. Sidan logdum vid af stad heim og eg svaf alla leidina i rutunni. Tegar eg kom heim var Oscar bara heima tvi oll familian hafdi farid til Ucay ad hittta mommu pabbans tvi hun a afmaeli i naestu viku og tau komast ekki ta. Eg var ta bara i rolegaheitum med Oscari en kl 8 for eg ad hitta Camillu, Line, Ellen, Rikke og Zinia tvi Camilla og Line eru ad fara til Boliviu a morgun. Vid bordudum saman a pizza stad og skiptumst a e-mail adressum og fleira. Mjog kosi.

Jaeja. Teir sem eru ekki haettir ad lesa nuna fa stort klapp a bakid. Tetta er ordid mjog langt. I gaer var samt aftur a moti ny skolavika og nyr kennari. Eg fekk samt sama kennara og fyrstu vikuna sem mer likadi alveg agaetlega vid tannig ad eg var mjog satt. Eftir skola bordadi eg med familiunni og for svo ad leita ad hotelum handa mer og mommu tegar hun kemur hingad i mars. Eg er farin ad hlakka ekkert sma mikid til. Fullt af folki hittist svo a kaffihusi um kvoldid en eg var einfaldlega of treytt og sofnadi um 10 leitid fyrir framan sjonvarpid. Mamman vakti mig svo og sagdi mer ad fara i rummid. Tad er gott ad hafa einhvern sem hugsar um mann herna. Tau eru aedi.

Monday, February 11, 2008

Bolludagsbollur, 20 ara afmaeli og fjollin

A midvikudaginn atti Ingibjorg afmaeli og lika hun Halla. Innilega til hamingju med tad badar tvaer !

A fimmtudaginn kom stelpa i hadegismat sem bjo herna i einn manud medan hun var i skolanum en flutti svo i ibud medan hun vann sjalfbodalidastarfid. Hun var svo ad fara heim a fostudaginn tannig ad hun kom til ad kvedja. Mjog indael stelpa og hafdi margt ad segja mer um Cusco og hvad eg tyrfti ad gera og hvad vaeri ekki svo mikilvaegt. Gaman ad tala vid hana. Um trju leitid helt eg svo a danska kaffihusid tar sem vid vorum bunar ad panta bolludagsbollur. Taer voru tvilikt godar og mjog surealiskt ad fa bolludagsbollur i Peru. Tegar eg kom heim fekk eg svo ad borda en for sidan med allri fjolskyldunni ad kaupa sko og buxur handa pabbanum tvi hann var ad fara til Lima i tvo daga og audvitad turfti ad kaupa a hann nytt dress. Tetta var hins vegar mjog gaman og a leidinni heim endudum vid a tvi ad koma vid a pizzu stad og panta tvaer pizzur. Otrulega gott. Litil afmaelisveisla ut af tvi hann vaeri i Lima a afmaelinu minu. Taladi um kvoldid vid Hnokka og mommu um leid og klukkan slo tolf a Islandi. Tott eg se i Peru ta er eg ennta Islendingur.

Fostudagur og tar af leidandi afmaelisdagur rann svo upp. Vissi ekki almennilega hvort eg aetti ad buast vid litlu eda miklu. Klaeddi mig samt adeins upp i tilefni dagsins og helt svo i skolan. Solin skein og allt stefndi i finan dag. Eg for i prof eins og vanalega og var ekkert buin ad laera ut af pizzukvoldinu kvoldid adur en eg tok bara kaeruleisid a tetta og profid gekk fint. I hleinu i skolanum fekk eg svo i afmaelisgjof ferd til Tipon ad borda cuy (naggris) fra donsku stelpunum og fra Julie fekk eg dvd mynd og franskt horn med sukkuladi. Aedislegar afmaelisgjafir i alla stadi. Afram helt skolinn en tegar svona half timi var eftir hringdi siminn minn og eg fekk ad svara tvi tetta var nu afmaelisdagurinn minn. Tad var ta oll fjodurfjolskyldan min saman komin ad syngja fyrir mig afmaelissongin. Mjog gaman.

Eg helt svo heim en tar beid min bara venjulegur hadegismatur en mamman sagdist aetla ad halda upp a amaelid mitt tegar eg kaemi ur salsa. Eg nadi ad skella mer sma i solbad og tala vid Hnokk adur en eg helt i salsa tima i skolanum kl 4. Tetta var ekkert sma skemmtilegur timi. I tetta skiptid var madur ad kenna okkur. Hann var ad visu mjog mikid ad syna okkur vodvana sina en tetta reyndi mjog mikid a og eg laerdi alveg helling. Tegar eg kom heim for eg svo med Oscari ad kaupa sykur og koku og sidan var haldin litil saet afmaelisveisla. Eg fekk kako, koku og braud med karamellu. Sykur i gegn. Tau sungu fyrir mig afmaelissongin og kveiktu a kertum og tetta var vodalega kruttlegt og gaman.

Um kvoldid var eg buin ad akveda ad hitta fullt af krokkum fra skolanum og vid aetludum ad fara ad laera meira salsa og halda upp a afmaelid mitt. Vid forum a stad sem heitir Mythology og tar var salsa fyrir byrjendur. Vid donsudum tar otruelga mikid og fengum okkur drykki. Eftir salsa kennsluna endudu allir a tvi ad dansa og ta gerdist dalitid ovaent. Kennarinn baud mer upp. Eg utskyrdi fyrir honum ad eg kynni ekkert i salsa en hann sagdi ad tad vaeri allt i lagi og byrjadi ad dansa vid mig. Hann sneri mer i hundrad hringi og gerdi fullt af allskonar kunstum en tetta var svo gaman. Kvoldid endadi svo med tvi ad vid forum a tvo adra stadi ad dansa en vorum svo ordin svo treytt ad vid forum a einhverskonar "McDonalds" her og eg keypti mer 2 isa og franskar. Af tvi eg atti nu afmaeli. Tetta var frabaer afmaelisdagur i alla stadi.

A laugardaginn var svo hittingur kl. 11 fyrir framan budina tar sem madur kaupir Boleto Turistico sem er midi sem gildir inn a 15 stadi. Vid tokum svo leigubil a stad sem heitir Tambomachay sem er tar sem heilagur tvottur inkana for fram. Fra tvi lobbudum vid svo a 4 stadi tar sem voru svona inka rustir og endudum svo a hinu fraega Saqsaywamán. Tetta var allt i allt 15 km ganga. A midri leidinni nadi amma akkurat ad hringja a medan tad var samband og oska mer til hamingju med afmaelid. Mikid totti mer vaent um tad. Tad var yndislegt. Stuttu eftir tad byrjadi hins vegar ad rigna urhelli og vid rett naudum ad komast inn i pinu litla bud tar sem tau hofdu pinulitid bord sem vid gatum setid vid og bedid eftir ad rigngingin haetti. Tetta klaradist nu allt a einum klukkutima eda svo tannig ad vid hofdum tad bara notalegt i tessari litlu local sjoppu og spiludum spil. Allir voru ofan i okkur og fannst vid vodalega spennandi. Tegar eg kom heim var eg tvilikt treytt og hafdi tad bara notalegt med fjolskyldunni.

I dag for eg svo til Pisac og for a risa markadinn sem er tar a sunnudogum. Vid forum svo ut af tvi vid hofum tennan Boleto Turistico upp ad inka rustum sem eru her lika. Lobbudum svo i fjollunum i ruma trja tima. Otrulega fallegt og gaman. Pinulitir stigar sem vid turftum ad fara eftir og ef madur steig ut af stignum var hnifbratt nidur. Lifsreynsla og nuna er eg naestum tvi viss um ad eg verd ad fara a The Inca Trail. Otrulega gaman.

Tuesday, February 5, 2008

Carnival

Fostudagskvoldid endadi med tvi ad eg for med donsku stelpunum a kaffihus og vid spiludum spil og hofdum tad notalegt. Eg var reyndar bara i tvo tima tvi eg var svo otrulega treytt og kom heim kl. 11 Tetta var samt mjog fint.

A laugardaginn vaknadi eg kl 9 og var i rolegheitum med fjolsyldunni. Mamman baud mer svo ad koma og kvedja fraenda hennar sem var ad fara til Chile i viku ad aefa fotbolta. Eg for med henni og a rutubilstodinni stod oll familian ad kvedja tennan fraenda sem eg hafdi hitt einu sinni adur. Tetta var mjog ahugavert og gaman. Rutan for klukkan eitt og allir veifudu tangad til ad rutan var farin ur augnsyn.

Um kvoldid var eg buin ad akveda ad hitta donsku stelpurnar og tvaer fra London a Plaza de Armas kl 19:45. Vid bordudum saman a veitingastad tar sem eg fekk mer graenmetispizzu og fengum okkur einn drykk i bodi hussins. Tad er otrulegt madur tarf bara ad bidja um drykk og ta faer madur hann fritt. Vid bordudum tarna og forum svo ut a Plaza de Armas og aetludum ad dansa salsa en fundum i stadin fria andlitsmalningu tvi tad var carnival tessa helgi. Audvitad forum vid tangad og letum mala okkur i framan og forum svo ad dansa. Tetta var otrulega gaman og eg dansadi i 2 klukkutima en akvad svo ad fara heim tvi eg turfti ad vakna kl 9 morgunin eftir ad fara a carnival med skolanum. Tegar eg kom heim kl 1 var engin heima nema Oscar (yngri brodurinn) allir voru i afmaeli og komu ekki heim fyrr en 2:30. Eg horfdi hins vegar sma a mynd med Oscari og for sidan ad sofa. Otrulega satt med kvoldid.

Carnivaldagurinn stori. Tegar eg vaknadi hafdi eg akvedid ad tad yrdi sol. For upp i skola kl 9 og ta byrjadi hins vegar ad rigna. Tad rigndi alla leidina til Ucoy og tegar vid komum tangad fretum vid ad carnivalinu vaeri frestad til 12. Vid akvadum ta ad keyra til Urubamba og fa okkur ad borda. Tar fekk eg otrulega goda kjuklingasamloku og svo var haldid aftur til Ucoy og ta var einmitt haett ad rigna. tegar vid stigum hins vegar ut ur bilnum vorum vid strax ordin skotmark fyrir born med vatnsblodrur. Tad er vist einhver sidur her ad kasta vatni a folk og spreyja a tad frodu. Tar sem vid vorum turistar vorum vid ad sjalfsogdu meira skotmark en adrir og eftir ad hafa labbad eina gotu vorum vid oll ordin gegn blaut. Frodan lyktadi eins og sapa tannig ad tad var alveg eins og vid hofdum oll skroppid i sturtu i fotunum. Vid horfdum svo a folk dansa i buningum. Bratt var ollum ordid kalt tannig ad vid akvadum ad fara til Pisac og kikja adeins a carnivalid tar. Tad var mjog svipad og i Ucoy tannig ad vid stoppudum ekki lengi en tetta var mjog skemmtilegt og ahugavert.

A leidinni heim stoppudum vid a stad tar sem er gert fullt af lama doti og tar voru lamadyr labbandi ut um allt. Mig langadi bokstaflega ad kaupa allt. Tetta var svo flott og svo mjugt en eg akvad ad geyma tad tangad til einhverntiman seinna. I rutunni skipti eg svo um fot tvi tad var ansi kalt ad vera i blautu fotunum.

Tegar eg kom heim hafdi fjolskyldan min verid i vatnsslag inni og allt var blautt. Eg skipti hins vegar i ullarfrotteid og lagdist fyrir framan sjonvarpid og sofnadi tar. Fekk mer svo ad borda og for svo ad sofa. Tetta var aedislegur dagur og frabaer upplifun.

I gaer var svo skoli og nyr bekkur og nyr kennari. Nuna er eg med stelpu i bekk sem er fra Noregi en fyrir 4 arum sidan var hun skiptinemi i Chile i 1 ar tannig ad hun kann mjog mikid i spaensku. Mjog krefjandi en agaett fyrir mig. Eg for svo heim og bordadi og akvad ad hitta donsku stelpurnar a danska kaffihusinu kl 3 ad horfa a mynd. A leidinni tangad keypti eg hins vegar heyrnatol og webcam handa fjolskyldunni minni og nuna get eg alltaf farid a skype herna heima. Tad er aedislegt og tau voru mjog anaegd med gjofina. A danska kaffihusinu pontudum vid svo bolludagsbollur naesta fimmtudag. Mjog surealiskt ad fa bolludagsbollur i Peru en eg hlakka mjgo mikid til.

For svo heim og setti upp webcamid og heyrnatolin. Aetladi ad fara ad lesa en sofnadi kl 8 vaknadi aftur kl 9 og burstadi tennurnar og sofnadi svo aftur. Eg get sofid endalaust.

Friday, February 1, 2008

Fotbolti og sukkuladigerd

Hestaferdin for ekki vel med miki. Buin ad vera med i maganum sidan ta. En tetta hlytur nu ad lagast. A midvikudaginn for eg i Samba tima i skolanum. Tad var ekkert salsa tessa vikuna og vid vorum allar mjog svekktar tannig ad ein af donsku stelpunum (taer eru nuna ordnar 7) sem hefur verid ad aefa samba i 10 ar tok sig til og kenndi okkur grunnsporin. Mjog gaman.

A fimmtudaginn var svo fotboltaleikurinn mikli. Eg for a markadinn og keypti mer nesti. Nestid samanstod af braudi, eplum, plomum og tomati. A markadinum keypti eg mer lika skraelara til ad skraela avexti og graenmeti. Mjog snidugt og mjog naudsynlegt. For svo heim og bordadi med familiunni. Tok mig til og klaeddi mig i sidar naerbuxur og flispeysu og fleira sem var hlytt. Tad er svo kalt her a kvoldin. Var maett nidur i skola kl. 17:00 tar voru teknar myndir og sett upp band med lidinu okkar. Mikil stemning i mannskapnum. Okkur var sagt ad tad maetti ekki koma med neinar floskur. Ekki ut af haettu a afengi heldur vegna tess ad vid gaetum kastad teim i hitt lidid. A leidinni keypi eg mer poncho ef tad skyldi byrja ad rigna. Vid komum svo loks i stadiumid og tar var rosalega mikid af folki. Leikurinn byrjadi ekki fyrr en 19:20 tannig ad vid turftum ad bida tarna i sma tima en tad var litid mal tar sem vid vorum morg saman og gatum bordad nestid okkar. Tegar lidid kom a vollinn aetladi allt ad tryllast. Flugeldar, oskur, fanar og klosettpappir hent upp i loftid. A sama tima byrjadi ad rigna og tad rigndi allan timan. Gott ad eg keypti ponchoid. I fyrrihalfleik skorudum vid 1 mark og mannskapurinn aetladi ekki ad na ser. Tad voru ekki fleiri mork i tessum leik en hann var mjog spennandi allan timan. Tad voru 500 logreglumenn a stadnum til ad verda hitt lidid og domarana. Einu sinni var naestum tvi buid ad brjotast ut slagsmal milli lidanna en domararnir nadu ad roa tad. Tad var mjog gaman ad vera tarna.

Eftir leikinn labbadi eg heim og tad var folk ut um allt ad fagna. Eg var blaut i skona og buxurnar og mamman a heimilinu hitadi handa mer te. Hun er svo yndisleg. Eg reyndi adeins ad laera fyrir profid sem var i dag en eg var svo urvinda ad eg sofnadi. Hef aldrei verid nein naeturmanneskja.

I dag var skoli og prof. Profid gekk upp og nidur en samt betur en seinast. Allir i minum bekk voru ad haetta i skolanum tannig ad teir turftu ad halda raedu. Mjog skemmtilegt. I dag var sol i allan dag tannig ad partur af kennslunni var uti. Tad var aedislegt ad nyta solina sma og hrista af ser regnid. I dag eftir skola kl 15:00 var svo sukkuladi gerd. Eg gerdi otrulega flott sukkuladi og tad smakkadist, otrulegt en satt, vel. Eg kom svo heim og gaf allri fjolskyldunni ad smakka.

Eg veit ekki hvad eg geri i kvold. Kannski madur kiki eitthvad ut. Vonandi get eg bara fylgt Tano("brodirinn") eitthvert. Tad er agaett tvi ta aefi eg mig i spaensku. Verd ad vera dugleg ad gera tad. Annars mun eg aldrei na tessu.

Tuesday, January 29, 2008

Solarvorn og hestaferd

Manudagar eru alltaf manudagar. Erfitt ad vakna tratt fyrir ad madur hafi farid snemma ad sofa. For i skolann og skradi mig medal annars i hestaferd, ferd a fotboltaleik, sukkuladi gerd og ferd a carnival. Ja. Tad verdur nog ad gera i tessari viku. Manudagar eru reddingardagar. Ta er skolinn med city tour fyrir nyju nemendurna og tad er vanalega ekki mikid ad gerast svo madur getur stussast allan daginn. Eg nadi ad kaupa mer solarvorn, fara i bankann, kaupa mer is, fara a internet kaffi og margt fleira. Agaetur manudagur.

Um kvoldid baud Tano (Jonatan eldri brodirinn) mer med ser ad hitta vini sina. Eg tadi tad og for med honum i eina flottustu ibud sem eg hef sed. Hun var i listamannahverfinu her i Cusco og mikid var hun falleg. Madur labbadi inn i port og tad var hluti af ibudinni. Ut fra portinu voru allskyns blom og litil herbergi. Ibudin var s.s hringinn i kringum portid. Mikid af storun gluggum og otrulega falleg. Med teim horfdi eg a kinverska mynd. Tau eru oll vodalega listraen og vist rithofundar. Tetta var hins vegar mjog gaman og eg gat adeins aeft mig ad babbla a spaensku.

I morgun var svo skoli. Bekkurinn minn samanstendur tessa vikuna af mer og tveimur fronskumaelandi krokkum. Strakur fra Canada og stelpa fra Belgiu. Franska er mjog nalaegt spaensku tannig ad tau eru med mikinn ordaford en eg er ad aefa mig. Kennarinn minn heitir Luz og er alveg agaet bara. Tessi tvo haetta samt eftir tessa viku tannig ad ta hef eg ekki hugmynd um hvad verdur ta um mig.

Eftir skola var svo hestaferdin. I hadeginu var mjog mikil sol en eg tok regnjakkan med til oryggis og for i gonguskonum. Solin entist ekki lengi. Tad rigndi allan timan medan vid vorum i hestaferdinni. Tad er eiginlega ekki haegt ad segja ad tad rigndi. Tad var demba allan timann. Eg var i regnjakkanum minum og blotnadi eiginlega ekkert undir honum en tad var haegt ad vinda buxurnar. Ollum var svo kalt en vid reyndum ad vera mjog jakvaed tessa 3 klukkutima sem hestaferdin var og sungum stanslaust I´m singin in the rain. Eg kom svo heim og for i heit bad og fekk mer heitt te. Agaetur en kaldur dagur.

Monday, January 28, 2008

Myndir

Eg er buin ad setja inn fullt af nyjum myndum. Taer eru herna undir Birta Dogg. Ytid bara a linkinn myndir. Nokkrar myndir af fjolskyldunni. Tau vildu samt ekki ad eg taeki mikid af myndum af teim en eg laumadi nokkrum. Betri myndir koma seinna.

Sunday, January 27, 2008

Goda fjolskyldan min og turisti

Eg vil byrja a tvi ad blogga um hvad mamman og pabbinn a heimilinu eru aedisleg. Tad er alveg hreint otrulegt hvad tau eru god vid mig. Tau koma fram vid mig eins og einn fjolskyldumedlim. Eg er mjog heppin. Adrir nemendur fa sumir ekki svo godar fjolskyldur. Fjolskyldur sem eru bara med tau af tvi ad tau fa pening fyri tad. Min fjolskylda er alls ekki svoleidis. Tau bjoda mer ad koma med ser allt og mamman breidir yfir mig teppi tegar vid horfum a sjonvarpid. Hun er buin ad segja ad nuna se tetta husid mitt og eg eigi ad haga mer eins og heima hja mer. Eg for ut um kvoldid i gaer og ta sagdi pabbinn vid mig ad eg maetti alltaf hringja i tau. Tott tad vaeri hanott maetti eg hringja ef eg vaeri i vandraedum. Eg turfti svo ad bida uti eftir leigubil og mamman vildi alls ekki ad eg bidi ein uti og beid med mer uti. Tau eru yndi.

A fostudagskvoldid vedjadi eg a ad eldri brodurinn. Vedjadi a ad hann mundi gera eitthvad og taka mig med ser. Eg vissi hins vegar ekki ad teir badir attu ad fara i skola daginn eftir tannig ad eg endadi bara heima. Tad reyndist samt fint tar sem eg taladi heil mikid vid yngri strakinn og skildi hann mjog mikid midad vid.

Um morgunin var eg buin ad akveda ad hitta donsku stelpurnar kl. 10:30 og vid aetludum ad vera turistar. Tad hafdi ringt alla nottina tannig ad eg akvad um morgunin ad tad yrdi sol tennan dag sem audvitad vard. Vid hittumst a Plaza de Armas og byrjudum a tvi ad fara i INKA MUSEUM. Tad var mjog flott. Saga inkanna rakin og mumiur og grjot ut um allt. Tetta er eitt af staerstu sofnunum i Cusco. Eftir vorum vid allar ordnar svangar og forum a Jack´s Cafe. Tetta er mjog ameriskur stadur en otrulega godur. Eg fekk mer samloku med osti, tomotum og pesto asamt audvitad fronskum kartoflum. Vid vorum svo saddar eftir matinn ad vid akvadum ad setjast nidur a Plaza de Armas og lata solina skina adeins a okkur. Eg gerdi ekki alveg rad fyrir hversu sterk solin er i 3300 m haed tannig ad eg brann dalitid a oxlum og baki. Tarf endilega ad fara ad redda mer solavorn. Tegar vid vorum bunar ad sola okkur forum vid svo i kirkjuna sem stendur a Plaza de Armas. Tetta var otrulega flott og stor kirkja. Mjog gaman ad skoda hana.

Stelpurnar akvadu svo ad fara heim og leggja sig og eg for a netkaffi i sma stund. Eg rolti svo heim og tegar eg steig inn um dyrnar voru mamman, pabbinn og Marcela (litla systirin) ad fara a markad sem er bara a laugardogum. Tau budu mer med og eg akvad audvitad ad tyggja tad. Tetta var mjog skemmtileg ferd. Keypt nammi sem er eins og popp en er samt ekki popp. Mjog saett og rosalega gott. Eins og eg segi tau eru svo almennileg vid mig.

Tegar eg kom heim horfdi eg a sjonvarpid en var buin ad akveda ad fara ut med donsku stelpunum tetta kvold. Taer budust til ad saekja mig i leigubil heim til min svo eg tyrfti ekki tad taka hann ein og mamman beid med mer uti. Vid forum a eitthvad diskotek tar sem allt var med salsa takti. Tau spiludu Robbie Williams med salsa takti. Mjog ahugavert. Vid fengum okkur einn drykk og donsudum svo. Mjog skemmtilegt kvold. Eg akvad samt ad koma heim snemma og var komin heim rumlega 12. Vil syna fjolskyldunni somu virdingu og hun synir mer.

I morgun fretti eg svo ad yngri strakurinn hefdi komid heim halftima a eftir mer. Hann var mjog treittur og eg hordi med honum a The Benchwarmers a ensku. Vid hloum mjog mikid.

Eg er buin ad hlada inn fullt af myndum. Ef tit klikkid a linkinn her til hlidar tar sem stendur myndir ta finnid tid taer. Eg a hins vegar eftir ad taka mynd af fjolskyldunni. Tad kemur bradum.


Turistar a Jack´s Cafe